VALDI KOMINN Í SAUMASKAP!
Valdimar Valsson, síðast kaupmaður í Miðbæ í Keflavik hefur allsendis ekki sest í helgan stein þó hann sé hættur að selja fólki mjólk og kjötfars. Hann fjárfesti nýlega í stórmerkilegri Pfaff saumavél en í henni er hægt að merkja eða sauma út (bródera) með mikilli nákvæmni merki og nöfn á allar gerðir af húfum, boli, handklæði og flísfatnað. Saumavélin er tengd tölvu sem gerir merkinguna mjög nákvæma en þetta kallar Valdimar merkjasaum. Hann segir að saumavélin góða sé eina sinnar tegundar á Suðurnesjum og vonast til að geta þjónustað Suðurnesjamenn vel. En átti hann einhvern tíma von á því að sitja fyrir framan saumavél? „Nei, þú getur rétt ímyndað þér. Ég hafði aldrei áður notað saumavél og því síður tölvu. En þetta var fljótlært og er mjög skemmtilegt“. Fyrir þá sem vilja panta og fá upplýsingar um merkjasaumið hjá Valda geta hringt í hann í síma 421-6160 og 897-9590.