Val á jólahúsi Reykjanesbæjar hefst í dag
Val á Ljósahúsi Reykjanesbæjar 2013 fer fram á vef Víkurfrétta en kosning um jólahúsið hefst í dag, 12. desember, kl. 18:00 og stendur til kl. 24:00 þann 15. desember. Eins og í fyrra verður íbúalýðræði viðhaft við val á jólahúsinu.
1. Nefndin: Skipuð er „jólanefnd“ þriggja aðila. Einn frá menningarsviði Reykjanesbæjar, einn frá umhverfis- og skipulagssviði Reykjanesbæjar og einn frá Víkurfréttum.
2. Forval: Nefndin velur 10 hús í bæjarfélaginu og myndir af þeim öllum birtast í Víkurfréttum (blaði og vef) fimmtudaginn 12. desember.
3. Netkosning: Bæjarbúar kjósa með netkosningu á Vef Víkurfrétta. Hver og einn velur eitt hús. Hægt verður að kjósa frá kl. 18.00 þann 12. des. til kl. 24.00 þann 15. des.
4. Úrslit: Niðurstaða kosninganna verður tilkynnt mánudaginn 16. desember kl. 18.00 í Duushúsum og eru allir bæjarbúar velkomnir að vera viðstaddir. Húsið sem flest atkvæði fær verður Ljósahús Reykjanesbæjar og næstu tvö fá líka viðurkenningu. Úrslitin verða síðan birt í Víkurfréttum, bæði í blaði og á vef.
5. Verðlaun: Góð verðlaun eru í boði en HS Veitur gefa þrenn verðlaun.
Val á jólaglugga Reykjanesbæjar 2013
Jólanefnd velur jólaglugga Reykjanesbæjar eins og áður og verða úrslitin tilkynnt við sama tækifæri. Veitt verður ein viðurkenning.
Mynd: Jólahúsið árið 2012, Týsvellir 1.