Bygg
Bygg

Mannlíf

Vaknaði með rúllur í hárinu
Marta Eiríksdóttir
Marta Eiríksdóttir skrifar
sunnudaginn 1. mars 2020 kl. 07:23

Vaknaði með rúllur í hárinu

„Ég fermdist þann 24. apríl árið 1977 í Útskálakirkju í Garði. Í minningunni var fermingardagurinn yndislegur dagur. Ég vaknaði að morgni fermingardagsins með rúllur í hárinu sem Þóra hárgreiðslukona hafði sett í mig deginum áður. Fermingardagurinn byrjaði á því að fara til Þóru í fermingargreiðslu. Þegar ég var búin í greiðslu var haldið í Útskálahúsið, þar sem við fermingarbörnin vorum klædd í kyrtlana yfir fínu fermingarfötin áður en við héldum í Útskálakirkju þar sem athöfnin fór fram. Fyrir ferminguna höfðum við farið í fermingarfræðslu þar sem við lærðum meðal annars trúarjátninguna og um tilgang fermingarinnar,“ segir Bryndís Knútsdóttir sem fermdist í Útskálakirkju árið 1977.

Altarisgangan ekki á fermingardeginum

Bryndís fermdist í gráum flauelsskokk yfir bleikan rúllukragabol og var í karrýgulum kúrekastígvélum. Fermingarmyndatakan fór fram hjá Heimi á Ljósmyndastofu Suðurnesja í Keflavík. „Við vorum fjórtán sem fermdumst þennan dag, fjórar stelpur og tíu strákar. Presturinn sem að fermdi okkur hét séra Guðmundur Guðmundsson. Ólíkt því sem tíðkast í dag þá fór altarisgangan og fermingin sjálf ekki fram sama dag heldur var gengið til altaris að kvöldi tveimur dögum eftir ferminguna.“

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Fullkomin kökuveisla að hætti mömmu 

„Að athöfn lokinni fór fjölskyldan saman heim þar sem ættingjar og vinir fögnuðu með þeim. „Foreldrar mínir höfðu undirbúið daginn fyrir mig með fullkominni kökuveislu sem mamma sá um, eins og henni einni var lagið. Eftir veisluna settumst við niður saman fjölskyldan þar sem ég opnaði gjafirnar og las fermingarskeytin. Ég fékk margar fallegar gjafir, til dæmis gull- og silfurhringa sem ég á enn og nota, hálsmen, gullúr sem ég fékk frá mömmu og pabba, ríkisskuldabréf og skatthol. Skattholið fékk ég frá ömmu og afa í Garðhúsum en það þótti vinsælt í þá daga að fá skatthol í fermingargjöf. Fermingardagurinn endaði svo á því að við fermingarsystkinin hittumst um kvöldið. Þetta var eftirminnilegur og skemmtilegur dagur.“