Útkall á sunnudag helgað Grindvíkingum og Eyjamönnum
Nýjasti Útkallsþátturinn á visir.is, sem er öllum aðgengilegur, verður helgaður Grindvíkingum og Vestmannaeyingum. Annars vegar hetjuleg björgun fyrir utan Grindavík þegar 12 skiprotsmönnum af Gjafari frá Vestmannaeyjum var bjargað aðframkomnum á land eftir að báturinn strandaði þar í foráttubrimi. Einnig verður sagt frá annarri björgun mánuði fyrr - þegar sami bátur flutti 440 manns til Þorlákshafnar í einni ferð þegar eldgosið hófst á Heimaey 1973.
Óttar Sveinsson ræðir við Guðjón Rögnvaldsson, vélstjóra á Gjafari og Ragnheiði Einarsdóttur, eiginkonu hans. Í þættinum verða tilfinningaríkir endurfundir þegar Margeir Jónsson, einn björgunarmannanna úr Grindavík, kemur óvænt og heilsar upp á þau hjónin. Þar ná þau að þakka fyrir lífgjöf Guðjóns.
Þátturinn verður frumsýndur á sunnudag en annars eru allir Útkallsþættirnir hér: https://www.visir.is/sjonvarp/