Mannlíf

Útivistarreglur gilda einnig á Ljósanótt
Ungt fólk nýtur lífsins á Ljósanótt.
Þriðjudagur 2. september 2014 kl. 11:09

Útivistarreglur gilda einnig á Ljósanótt

Breytingar tóku gildi í gær.

Einn haustboðanna er breyting á útivistarreglum barna, en nýjar reglur tóku gildi í gær, 1. september.

Ljósanótt er framundan og gilda svona reglur að sjálfsögðu einnig þá.

Public deli
Public deli

Saman hópurinn og Ríkislögreglustjóri hafa gefið út meðfylgjandi orðsendingu til að minna á þessar árlegu breytingar. Reglurnar eru samkvæmt barnaverndarlögum en forleldrum er einnig frjálst að stytta útivistartímana.