Ljósmynd: Ellert Grétarsson
Ganga frá Stömpum að Reykjanesvita
Miðvikudaginn 25. júlí verður öllum boðið sem áhuga hafa upp á gönguferð frá Stömpum að Reykjanesvita. Gengið verður um Stampahraun yfir Sýrfellsdrög að Gunnuhver og þaðan að Reykjanesvita.
Gangan tekur u.þ.b 2 - 3 klst gengið verður í sandi og hrauni og ætti að vera við allra hæfi.
Gönguleiðin er innan 100 gíga garðsins sem er svæðið yst á Reykjanesi sunnan Hafnabergs og brúar á milli himsálfa Kristján Pálsson framkvæmdastjóri Markaðsstofu Suðurnesja mun hitta hópinn á miðri leið og segja frá þessu spennandi verkefni.
Leiðsögumaður verður Rannveig Garðarsdóttir.
Allir velkomnir
Upphafsstaður: Vesturbraut 12, Hópferðir Sævars kl 19:00
Hvenær: kl 19:00
Kostnaður: kr 1000 fyrir þau sem nýta sér rútuna
Heilræði:
* Göngustafi.
* Drykkjarföng.
* Léttan bakpoka.
* Viðeigandi hlífðarfatnað eftir veðri (t.d. aukapeysu, sokka, vettlinga, húfu).
* Létt nesti (t.d. samloku, ávexti, kex).
* Góðir gönguskór.
* Góða skapið.
Nánari upplýsingar gefur Rannveig Garðarsdóttir leiðsögumaður í síma 893 8900.
- Mannlíf | 25. maí 2013 16:55Ráðherrafjör hjá Ragnheiði Elínu
- Mannlíf | 25. maí 2013 14:30Fjölskyldutónleikar með Gospelkrökkum í dag
- Mannlíf | 25. maí 2013 09:21Verður alveg einstakt sumar
- Mannlíf | 24. maí 2013 07:21Litskrúðugir landnámshænuungar senn til sýnis
- Mannlíf | 23. maí 2013 18:00Traktors- og fornbílasýning í Reykjanesbæ
- Mannlíf | 23. maí 2013 17:26Afhentu BUGL 640 þúsund krónur


