Útgáfutónleikar Geimsteins í Hljómahöllinni í kvöld
Útgáfufyrirtækið Geimsteinn stendur fyrir tónleikum í Hljómahöllinni í kvöld, þriðjudaginn 13. apríl. Júlíus Guðmundsson, framkvæmdastjóri útgáfunnar, skipuleggur þessa uppákomu ásamt bróður sínum Baldri.
„Þetta útgáfuár verður eitt það stærsta hjá Geimsteini frá upphafi en fyrirhugað er að gefa út fyrir sumarið diska með Bjartmari Guðlaugssyni og Bergrisunum, Erpi Eyvindarsyni, Deep Jimi and the Zep Creams, Klassart, Lifun, Valdimar og Breiðbandinu. Af þessum hljómsveitum eru fimm héðan úr Reykjanesbæ þannig að ljóst er að mikil gróska er í tónlistarlífinu hér eins og reyndar alltaf,“ segir Júlíus í samtali við Víkurfréttir.
Fyrsti diskurinn sem kemur út verður „Better when we‘re dead“ með Deep Jimi and the Zep Creams og hann kemur einmitt út þann 13. apríl, sama dag og útgáfutónleikarnir fara fram. Síðan koma diskarnir út hver á eftir öðrum og eru að sögn Júlíusar hvert meistaraverkið á fætur öðru.
Ástæða þessarar dagsetningar kemur til vegna þess að þetta er afmælisdagur Rúnars Júlíussonar heitins en hann hefði orðið 65 ára þennan dag hefði hann lifað.
„Pabbi átti stóran þátt í uppbyggingu Hljómahallarinnar og því þótti okkur við hæfi að halda tónleikana þar. Þarna munu koma fram þær hljómsveitir sem útgáfan mun gefa út og vonandi koma sem flestir en aðgangur er ókeypis í tilefni dagsins og hefjast tónleikarnir kl. 20:00“.