Útgáfutónleikar Geimsteins á Ránni: Hjálmar og Baggalútur troða upp

Sænsk-íslenska reggísveitin Hjálmar, sem hafa farið mikinn á tónlistarsviðinu hér á landi undanfarið ár standa þar fremstir. Fyrsta plata þeirra, Hljóðlega af stað, sem kom út í fyrra fór í gullsölu, en Rúnar afhenti þeim félögum gullplötuna á útgáfutónleikum þeirra á Flúðum fyrir skemmstu. Nýútkomin plata hefur einnig farið vel af stað og selst grimmt. Þá hefur Baggalútur gert góða hluti með kántríplötu sinni sem kom út undir merkjum Geimsteins í haust að ógleymdri stórsveitinni Deep Jimi and the Zep Creams. Þeir komu saman á ný fyrr í ár og hafa sett saman nýja plötu og sanna þar að þeir hafa engu gleymt.
Allt frá upphafi hefur aðalsmerki Upptökuheimilis Geimsteins, eins og hljóðver þeirra er kallað, verið að hlúa að grasrótinni og gefa ungum og efnilegum sveitum færi á að sanna sig. Oftar en ekki hefur þessi áhætta borgað sig, en aldrei sem nú um þessar mundir. Reggí og kántrí eru ef til vill ekki hæst á vinsældarlistum úti í heimi, en þeir hafa svo sannarlega snert strengi hjá tónlistaráhugamönnum hér á landi og segir Rúnar að hann hafi aldrei efast um möguleika Hjálmanna. „Það eru mjög breyttar aðstæður í bransanum og fleiri leiðir inn en áður, en það gerir oft erfiðara að komast áfram því að svo margir eru um hituna. Þeir sem eru með hæfileika komast samt alltaf áfram með þrautseigju.”
Skemmtileg nýjung hefur líka verið að njóta síaukinna vinsælda hjá Geimsteini, en Rúnar hefur þar tekið á móti hópum fólks sem eru í yfirferð um Suðurnes. Þau geta fengið að spreyta sig við að syngja í alvöru hljóðveri og fá disk með afrakstrinum með sér. „Þarna er nokkur viðsnúningur á ferð,” segir Rúnar með bros á vör. „Ég hef verið að syngja og spila fyrir áhorfendur í öll þessi ár, en nú eru þau farin að koma inn til mín til að syngja fyrir mig!”
Rúnar sjálfur hélt upp á 60 ára afmæli sitt í sumar og hefur sjaldan verið meira að gera hjá honum í tónlistinni. „Ég er að spila mikið með strákunum mínum í Rokksveit Rúnars Júlíussonar og svo er ég líka að koma fram einn. Ég gaf út sólóplötu fyrr á árinu sem heitir Blæbrigði lífsins og svo er önnur slík á leiðinni á næsta ári þannig að það er nóg að gera!” Auk þess fékk Rúnar nafnbótina Listamaður Reykjanesbæjar á 17. júní og Geimsteinn fékk Súluna, menningarverðlaun Reykjanesbæjar, fyrir framlag sitt til tónlistar.
Á tónleikunum leika sveitirnar lög af nýju plötunum, en Rúnar segist munu hefja tónleikana. „Það er nú svo komið að ég er farinn að hita upp fyrir ungu gæjana,” segir hann að lokum, léttur í bragði.