Útgáfuteiti Mei mí beibísitt? í dag
Útgáfuteiti vegna bóknarinnar Mei mí beibísitt?, sem Víkurfréttir gefa út í samvinnu við rithöfundinn Mörtu Eiríksdóttur, verður í dag í göngugötunni framan við bókasafn Reykjanesbæjar í Kjarna á Flughóteli. Dagskrá hefst kl. 15 og stendur til 17.
Þar mun Marta lesa í fyrsta sinn opinberlega úr bókinni. Þá mun hún árita bókina fyrir þá sem vilja tryggja sér fyrstu eintökin af bókinni. Strax eftir helgi verður bókin svo komin í bókabúðir og verður einnig til sölu á skrifstofu Víkurfrétta. Hér er tvímælalaust á ferðinni skemmtileg saga úr Keflavík á árunum 1960 og eitthvað til 70 og eitthvað.
Boðið verður upp á tónlistaratriði og fleira skemmtilegt verður á dagskrá í útgáfuteitinu í dag, þar sem allir eru velkomnir.