Út að hjóla á fermingardaginn
sagði Ellert Eiríksson sem fermdist á hvítasunnudag árið 1952:Ellert Eiríksson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, fermdist í Keflavíkurkirkju á hvítasunnudag árið 1952. Fermingin var söguleg fyrir þær sakir að þetta var í síðasta skipti sem séra Eiríkur Brynjólfsson, frá Útskálaprestakalli, fermdi í Keflavík, því um sumarið var Björn Jónsson kosinn prestur.„Ég man að veðrið var gott þennan dag en ástæðan fyrir því að ég man það er að ég fékk reiðhjól í fermingargjöf og fór út að hjóla.“ Ellert viðurkennir að hafa kviðið fyrir að þurfa að lesa upp úr ritningunni við athöfnina, en í dag er hann þekktur fyrir allt annað en feimni. „Athöfnin var mér minnisstæð ekki síst fyrir það hversu mörg börn fermdust þennan dag. Stelpurnar fermdust þó ekki með okkur strákunum, því var fermt tvisvar sama dag, fyrir og eftir hádegi. Stelpurnar voru allar í hvítum kjólum og við stákarnir í svörtum jakkafötum. Kyrtlarnir voru ekki komnir þegar ég fermdist“, segir Ellert.Á þessum tíma tíðkaðist ekki að fara í sérstaka fermingarmyndatöku en Ellert segir að veislurnar hafi verið með svipuðu sniði þá og þær eru í dag. „Veislan var haldin heima og það var setið í öllum skotum. Við vorum með kalt hlaðborð og þar mátti m.a. finna roastbeef, svínasteik, lambasteik og lax. Frómas var hefðbundinn eftirréttur og að lokum var boðið uppá kaffi og tertu“, segir Ellert en lýsingin á veisluborðinu kitlar svo sannarlega bragðlaukana.Ellert segist ekki hafa fengið margar gjafir og einhverja peninga fékk hann að gjöf, þó hann muni ekki lengur hvað hann gerði við þá. „Í þá daga tíðkaðist að foreldrar gæfu börnum sínum armbandsúr. Síðan fékk ég reiðhjól og myndavél. Ætli ég hafi ekki verið hrifnastur af reiðhjólinu og úrinu, myndavélar hafa aldrei höfðað til mín.“