„Uppúr haganum” í Suðsuðvestur
Næstkomandi laugardag kl. 16 opnar Karlotta Blöndal sýningu í Suðsuðvestur í Reykjanesbæ.
Þar tengir hún saman tvö verk, frá 2007 og 1999, og sýnir þau í nýju ljósi og í nýjum aðstæðum, með nokkrum tilfæringum og viðbótum. Í verkinu Hótel, frá 2007, er heimildaljósmynd frá hótelbrunanum á Siglufirði 1957 fjölrituð og er hluti úr henni teiknuð á vegginn. Samhliða því sýnir hún verkið Reassessment, upphaflega frá 1999, sem er innsetning úr við. Sýningin í heild sinni heitir svo Uppúr haganum.
Sýningin stendur yfir til 16. ágúst og eru allir velkomnir.,Suðsuðvestur er á Hafnargötu 22, þar er opið laugardaga og sunnudaga frá kl. 14 – 17 og eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar fást í síma 662 8785.