Uppselt á SamFésballið í Kaplakrika
Félagsmiðstöðin Fjörheimar fékk úthlutað 80 miðum á hið árlega SamFésball,
sem haldið verður föstudaginn 8. mars n.k. Það er skemmst frá því að segja
að miðarnir runnu út eins og heitar lummur. Talið er að um 2.500 unglingar
víðsvegar af landinu muni skemmta sér í Íþróttahúsinu við Kaplakrika í
Hafnarfirði. Meðal hljómsveita sem leika fyrir dansi eru hljómsveitirnar Jet
Black Joe, Nýdönsk, Buttercup & Á móti sól og margar fleiri. Krakkarnir eiga
að mæta klukkan 17:30 í Fjörheima og ballið stendur til 23:45. Áætlað
heimkoma í Reykjanesbæ er um klukkan 01:00 eftir miðnætti. Foreldrum er
vinsamlega bent á að rútan sem farið verður með mun stoppa í Fjörheimum
eftir ball og geta foreldrar því sótt börnin sín beint í rútuna. Einnig
verður tekinn strætóhringur. Símanúmer starfsmanna í ferðinni er 891-9101.