Mannlíf

Uppselt á heima í Gamla bænum
Miðvikudagur 31. ágúst 2016 kl. 14:17

Uppselt á heima í Gamla bænum

-gestir sæki armbönd í Duushúsum

Uppselt er á heimatónleika í gamla bænum sem slógu í gegn á síðustu Ljósanótt og ljóst að færri komast að en vilja en miðafjöldi er takmarkaður þar sem tónleikarnir fara fram í heimahúsum.



Fram koma hljómsveitirnar og tónlistarmennirnir Berndsen & Hermigervill, Elíza Geirsdóttir Newman, Jón Jónsson, Markús & The Diversion Sessions og Ylja.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024



Skipuleggjendur hvetja þá sem hafa nælt sér í miða að nálgast armbönd sín í Duushúsum en þar fá þeir jafnframt kort með helstu upplýsingum og þeim húsum sem taka þátt.

Heima í gamla bænum hefst kl. 21 á föstudaginn og leikur hver hljómsveit tvisvar sinnum í hverju húsi þ.e. kl. 21 og 22. Berndsen og Hermigervill munu þó skipta á milli sín leik á Íshússtíg.