Upplifið jarðskjálfta í Svartsengi!
Eitt er það fyrirtæki á Suðurnesjum sem óhætt er að segja að hafi öðrum fremur markað tímamót hvað varðar uppbyggingu á ferðamannaiðnaði á svæðinu en það er að sjálfsögðu Hitaveita Suðurnesja. Engan gat órað fyrir því þegar lagt var af stað með virkjunarframkvæmdir með það fyrir augum að sjá Suðurnesjamönnum fyrir yl inn á heimilin, að ein afleiðingin yrði stærsta ferðamannaparadís Íslands og sér ekki enn fyrir endann á uppbyggingu þeirri sem átt hefur sér stað frá stofnun fyrirtækisins. Hitaveita Suðurnesja leitast ekki aðeins við að virkja orkuna úr iðrum jarðar til upphitunar og rafmagnsframleiðslu, heldur og einnig að leggja sitt af mörkum til eflingar sem og uppbyggingar á hinum ýmsu þáttum samfélagsins á Suðurnesjum“, segir Þorsteinn Jónsson kynningarstjóri sem hefur starfað hjá fyrirtækinu á annað ár og sér um að kynna og upplýsa almenning um starfsemi H.S.Mikið lagt upp úr umhverfismálumí SvartsengiOrkuverið í Svartsengi hefur verið vettvangur óteljandi kynninga, bæði á starfssemi fyrirtækisins sem og samfélaginu á Suðurnesjum og hafa einstaklingar jafnt sem fyriræki á Suðurnesjum notið góðs af því. Stjórnendur H.S. gerðu sér strax í upphafi grein fyrir þörf á aðstöðu til móttöku slíkra gesta með byggingu móttökusalar í orkuverinu þó menn hafi kannski ekki gert sér grein fyrir þeirri gífurlegu aukningu sem verða myndi á þeim vettvangi. Þorsteinn segir orkuversbyggingar, sérstakt umhverfi orkuversins, ósnortið umhverfi, jarðfræði þess og gróðurfar, hreint loft og frumkvæði Hitaveitu Suðurnesja í nýtingu saltrar jarðgufu til hitunar, raforkuframleiðslu og iðnaðar og ekki síst aukaafurð orkuversins, sem kom raunar öllum á óvart, Bláa lónið, með sína dulúð og lækningamátt, hafa á hverju ári laðað að tugþúsundir gesta í Svartsengi. Þorsteinn segir H.S. leggja mikið upp úr þeim þáttum er lúta að umhverfismálum og að fyrirtæki starfi í sátt við umhverfið og bendir m.a. á að viðamiklar rannsóknir á svæðinu sem staðið hafa yfir allt frá stofnun fyrirtækisins. Eldborg kemur til sögunnarSvo fór að gamli móttökusalurinn var orðinn of lítill og á hátíðarfundi stjórnar H.S. þann 28. Desember 1994, vegna tvítugsafmælis hitaveitunnar var ákveðið að efna til opinnar samkeppni um hönnun byggingar sem þjónað gæti vel því hlutverki að vera vistlegt mötuneyti fyrir starfsmenn H.S. og áhugaverð aðstaða til kynningar á orkuverinu í Svartsengi, starfsemi Hitaveitu Suðurnesja og náttúru og sögu svæðisins. Eldborgin í Svartsengi sem tekin var í notkun þann 6.mars 1998 er afsprengi þeirrar ákvörðunar. Hugmyndin að gjánni má segja að hafi orðið til strax og ákveðið var að hefjast handa við byggingu Eldborgar. Þar má fræðast um myndun og mótun Íslands, orsakir og afleiðingar eldgosa og jarðskjálfta auk þess sem hægt er að setja af stað einn slíkan. Einnig er þar að finna margmiðlunarefni með öllum helstu upplýsingum um H.S. og samfélagið á Suðurnesjum. Margmiðlunarefnið má einnig finna á heimasíðu H.S. www.hs.is Allt þar til Þorsteinn réðist til starfa hjá fyrirtækinu sáu stjórnendur þess nær alfarið um móttökur og kynningar til handa þeim gestum sem sækja vildu fyrirtækið heim en þar á meðal eru þjóðhöfðingjar og fyrirmenn ýmissa ríkja sem kynna vilja sér framsýni stjórnenda ekki síður en hugvit það sem liggur að baki orkuverinu.Einstæðar hraunmyndanirEldborgin kemur þó ekki aðeins til með að verða þáttur í eflingu ferðamanna-iðnaðarins, því verið er að vinna verkefni út frá þeirri kynningu sem fram fer í Eldborg en þar leggur H.S. einnig sitt af mörkum til eflingar á fræðslu og þekkingu núverandi sem og komandi kynslóða. Er það von okkar að skólar, hvaðanæva að, komi til með að nýta sér þennan vettvang sem þátt í því að kynnast sögu lands og þjóðar betur segir Þorsteinn. Einnig er fyrirhuguð lagning göngustíga um svæðið svo fólk fái betur notið þeirra einstæðu hraunmyndana sem þar er að finna.MenningaruppákomurÝmsar menningaruppákomur hafa farið fram í Eldborg og nú nýverið lauk samstarfsverkefni milli Grindavíkur, Bláa lónsins og H.S. þar sem fremstu listamenn þjóðarinnar sem og heimsþekktir listamenn komu fram. Þrír ráðstefnusalir eru leigðir út til funda og námskeiðahalds og geta fyrirtæki jafnt sem einstaklingar leigt salina hjá veitingamönnum og hótelhöldurum er sinna slíkri starfssemi á Suðurnesjum en það segir Þorsteinn gera heimamönnum kleift að sækja inn á stærri markaði sem ekki hefur verið hægt að sækja á áður sökum aðstöðuleysis. Þorsteinn segir samkeppni fyrirtækja vera af hinu góða en stöðug aukning í ferðamannaiðnaði á Suðurnesjum kallar á samvinnu allra þeirra aðila er hlut eiga að máli, „Til langframa skilar það sér margfalt til baka“, segir Þorsteinn. „Ég er hissa á að heimamenn séu ekki fyrir löngu sestir niður til skrafs og ráðagerða. Suðurnes bjóða upp á svo mikinn fjölbreytileika að hægt er að setja saman lengri og styttri ferðapakka sem hentað gætu öllum. Bæjaryfirvöld mættu gjarnan leggja meiri rækt við þá þætti er lúta að uppbyggingu ferðamála á Suðurnesjum, tækifærin liggja allt í kringum okkur við þurfum aðeins að nýta okkur þau, segir Þorsteinn Jónsson kynningarstjóri Hitaveitu Suðurnesja.