Upphitun fyrir þjóðhátíð á Yello
Lífið er yndislegt og það ætla þeir Jói Drummer, Dabbi bítill og Siddi að sanna en þeir hefja helgina á Yello í kvöld með fögrum tónum frá dalnum. Kvöldið er upphitun fyrir verslunarmannahelgina sem verður ekki síðri. Strákarnir ætla að skemmta gestum með gítarspili, íðilfögrum söng og taktfastri bongótrommu en þeir eru annálaðir fyrir góða stemningu. Piltarnir kveikja á græjunum upp úr 23:00 en á eftir þeim er það enginn annar en DJ Joey D sem þeytir skífum fram undir morgun. Ekki missa af þessu!
Föstudagskvöldið verður síðan tileinkað flottum og taktföstum r&b og rapplögum – nýjum og gömlum. Það er húsplötusnúðurinn Atli Már sem sér um að matreiða það heitasta ofan í gesti staðarins.
Laugardagskvöldin á Yello eru með þeim vinsælustu í bænum en staðurinn hefur verið svo gott sem fullur allar laugardaga frá opnun staðarins. DJ Stjáni tryllti glaða gesti síðustu helgi en nú er komið að DJ Atla Má sem kemur ferskur úr sumarfríi með fullt af flottri tónlist.
Eins og áður er frítt inn á Yello og vegna kreppunnar býður staðurinn öllum gestum upp á frábær tilboð á barnum! Hægt er að skoða dagskrá helgarinnar á myspace-síðu staðarins á slóðinni myspace.com/egelskayello