UPPHAF NÝS ÁRS
Í upphafi nýs árs lítur maður gjarnan til baka en horfir jafnframt fram á veginn.Síðast liðið ár var okkur hjá HSS bæði hagstætt og óhagstætt. Hagstætt var það að því leiti að til okkar komu til starfa nokkrir ungir og vel menntaðir læknar bæði á heilsugæslusviði og á sjúkrahússviði. Við búum því við góða læknamönnun en nokkurn skort á hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum en vonum að úr því rætist, m.a vegna þess samnings sem gerður hefur verið milli Háskólanns á Akureyri, Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum og HSS um fjarkennslu í hjúkrunarfræðum. Þá var á síðsta ári hafin bygging hinnar margnefndu D - álmu, sem hefur verið til umræðu í a.m.k. 15 ár. Byggingin er nú fokheld og fullbúin að utan og væntanlega verður framhald boðið út í þessum mánuði en nokkur töf hefur orðið á því. Fyrsta hæð hennar ætti því að komast í gagnið um næstu áramót og önnur hæðin fljótlega eftir það. Þá mun lagast mjög öll aðstaða starfsmanna, endurhæfing og sjúkraþjálfun fá mjög góða aðstöðu. Ný aðstaða bæði fyrir ritara og rannsóknardeild. Um leið verður unnt að auka pláss röntgendeildarinnar og aðstaða í kapellu bætt ásamt því að unnt verður að gera sér inngang í kapelluna en aðkoma að henni hefur verið slæm. Fjárhagstaða HSS á síðast ári var mjög erfið og kemur þar einkum tvennt til. Í fyrsta lagi hefur rekstrargrunnur stofnunarinnar miðað við núverandi þjónustustig verið alltof lágur í mörg ár svo og urðu launahækkanir talsvert umfram það sem að var stefnt. Þetta er ekki einungis staða HSS heldur einnig hjá öðrum heilbrigðisstofnunum eins og fram kom í fjáraukalögum ársins 1999 og umræðum um þau. En úr þessu var bætt með aukafjárveitingu í lok ársins þannig, að unnt er að hefja nýtt ár í fyrsta skipti í mörg ár án þess, að hafa áhyggjur af löngum skuldalista liðinna ára.Jafnframt var rekstrargrunnur í fjárlögum bættur verulega vegna ársins 2000 og því að mörgu leiti bjartara framundan þó það verði að gæta fyllsta aðhalds í rekstrinum svo endar nái saman. En með bættum rekstrargrunni verður léttara að gera áætlanir um reksturinn heldur en verið hefur undanfarin ár. Við höfum átt því láni að fagna að hafa gott starfsfólk, sem hefur lagt sig fram í starfi oft við erfiðar og viðkvæmar aðstæður. Við horfum því björtum augum til framtíðarinnar og trúum því að við getum áfram veitt góða þjónustu fyrir Suðurnesjamenn og aðra sem til okkar leita. Þakka ber þann hlýhug, sem einstaklingar, félagasamtök og stofnanir hafa sýnt okkur með veglegum gjöfum til kaupa á tækjum og annars búnaðar. Það var einkar ánægjulegt, að taka á móti nokkrum börnum, sem voru fulltrúar þeirra fjölmörgu barna, sem gefið hafa okkur afrakstur af tombólum, sem þau hafa haldið og dugði nú til kaupa á 2 hjólastólum. Aðrir hafa í pistlum þessum skýrt frá ýmsum faglegum nýungum sem tekin hafa verið upp og mun ég ekki endurtaka það. Það er markmið okkar allra sem vinnum hjá HSS, að veita góða þjónustu, fylgjast vel með nýungum og helst að vera í fararbroddi.Ég vil að lokum óska starfsfólki HSS og Suðurnesjamönnum öllum farsældar á árinu og þakka samstarf og kynningu liðinna ára.Jóhann Einvarðsson, framkvæmdastjóri HSS.