Ungmenni vikunnar: Ofurhress íþróttakappi
Ungmenni vikunnar:
Nafn: Jóhann Guðni
Aldur: 13 ára
Skóli: Akurskóli
Bekkur: 8. bekkur
Áhugamál: Körfubolti
Jóhann Guðni er þrettán ára íþróttakappi sem er í 8. bekk í í Akurskóla. Jóhann segir að uppáhaldsfagið hans í skólanum séu íþróttir og eftir grunnskóla langar hann að verða atvinnumaður í körfubolta. Jóhann er ungmenni vikunnar.
Hvert er skemmtilegasta fagið?
Íþróttir.
Hver í skólanum þínum er líklegur til að verða frægur og hvers vegna?
Viktor, hann verður þjálfari.
Skemmtilegasta saga úr skólanum:
Ég er ekki viss en við strákarnir erum mjög hressir í skólanum.
Hver er fyndnastur í skólanum?
Viktor Þ. og Mikki.
Hvert er uppáhaldslagið þitt?
Hvar er Guðmundur?
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
Kalkúnn.
Hver er uppáhaldsbíómyndin þín?
Villibráð.
Hvaða þrjá hluti myndir þú taka með þér á eyðieyju og hvers vegna?
Mat til að borða, vatn til að drekka og rúm til að sofa.
Hver er þinn helsti kostur?
Hress.
Ef þú gætir valið þér einn ofurkraft til að vera með restina af ævinni, hvað myndir þú velja?
Geta flogið.
Hvaða eiginleiki finnst þér bestur í fari fólks?
Jákvæðni.
Hvað langar þig að gera eftir grunnskóla?
Verða atvinnumaður í körfubolta.
Ef þú ættir að lýsa sjálfum þér í einu orði hvaða orð væri það?
Jákvæður.