Reykjanesbær 3-6 sept
Reykjanesbær 3-6 sept

Mannlíf

Ungmennaþing í Grindavík í dag
Fimmtudagur 22. nóvember 2012 kl. 10:00

Ungmennaþing í Grindavík í dag

Í dag verður haldið ungmennaþing í Grindavík. Þingið er fyrir ungmenni á aldrinum 13 - 18 ára og verður haldið í Hópsskóla og hefst kl. 18:00. Boðað er til þingsins að fenginn tillögu Ungmennaráðs Grindavíkur sem var starfandi sl. vetur.

Tilgangur þingsins er að fá hugmyndir frá ungu fólki í Grindavík um málefni er þau varða.

Ungmennaþing er vettvangur ungs fólks til þess að koma saman og ræða á málefnalegan hátt um sín mál ásamt því að setja fram tillögur til úrbóta.

Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona

Hverju getum við breytt? Hvað er hægt að gera betur? O.s.frv.

Af hverju er mikilvægt að Ungmennaráð sé virkt?

Hlutverk Ungmennaráðs er að koma skoðunum ungs fólks á framfæri ásamt því að vernda hagsmuni hópsins. Ungmennaþing þjónar þeim tilgangi að fá hugmyndir frá ungu fólki að verkefnum og lausnum sem geta bætt hag ungmenna í Grindavík. Þátttakendum ungmennaþings er skipt upp í nokkra hópa. Á þinginu verða meginumræðuefni eftirtalin;
    •    skólamál - framhaldsskóli í Grindavík? (fræðslumál),
    •    atvinnumál ungs fólks, menning og félagsmál og íþróttir og tómstundir (forvarnir).
    •    Athygli skal vakin á því að þessi málefni eru mjög opin og þátttakendur hvattir til þess að ræða um þau málefni sem þeim þykir mikilvæg.

Hefur þú skoðun á: Menntaskóla í Grindavík? Afþreyingu fyrir ungt fólk? Aðstöðu ungs fólks í Grindavík?? Finnst þér vanta ungmennahús?

Ef þú hefur skoðun á málefnum ungs fólks í Grindavík þá er tilvalið að mæta á fundinn og koma þínum skoðunum á framfæri.

Boðið verður upp á veitingar.

Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25