Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Unglingunum þykir ennþá gaman að ferðast með okkur foreldrunum
Anna Sigríður með eiginmanni sínum, Óla Þór Magnússyni, á Tenerife. Myndir úr einkasafni Önnu Sigríðar
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
laugardaginn 3. september 2022 kl. 07:56

Unglingunum þykir ennþá gaman að ferðast með okkur foreldrunum

– segir Anna Sigríður Jóhannesdóttir sem ætlar að sækja myndlistasýningar á Ljósanótt en á þeim kaupir hún oft eitthvað
fallegt fyrir heimilið eða í gjafir

Hvernig varðir þú fyrsta sumarfríinu án takmarkana? 

„Fyrsta sumarfríið án takmarkana var á Tenerife í sól og blíðu.“

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Hvað stóð upp úr? Hvað kom skemmtilega á óvart í sumar? 

„Það sem stóð upp úr og kom skemmtilega á óvart var að unglingunum þykir ennþá gaman að ferðast með okkur foreldrunum.“

Með dætrunum í mini golf.

Áttu þér uppáhaldsstað til að sækja heim innanlands? 

„Uppáhaldsstaður til að sækja heim innanlands er Dalvíkin draumabláa.“

Hvað ætlar þú að gera í vetur? 

„Í vetur ætla ég að einbeita mér að vinnu og fjölskyldu og rækta heilsuna alla daga, hún er mikilvægust“

Hvernig finnst þér Ljósanótt og hvaða viðburði ætlar þú að sækja?

„Mér finnst Ljósanótt í Reykjanesbæ spennandi og skemmtileg, ég ætla að sækja marga viðburði, sérstaklega myndlistasýningar þær eru alltaf góðar og oft kaupi ég mér eitthvað fallegt fyrir heimilið eða í gjafir. Ég ætla einnig á góða tónleika, þetta verður algjör veisla í ár, stefnir í mjög flotta Ljósanótt sem engin má missa af.“

Hver er besta minningin þín frá Ljósanótt?

„Besta minning mín frá Ljósanótt er þegar sonur minn og vinkona hans sungu lagið Velkomin á Ljósanótt  fyrir gesti í Keflavíkurkirkju.“

Hjólaskautað meðfram ströndinni.