Unglingadeildin Tígull endurvakin
Tígull, unglingadeild Björgunarsveitarinnar Skyggnis, hefur verið endurvakin. Um 30 manna hópur unglinga frá 14 ára aldri og uppúr kom saman í húsakynnum sveitarinnar í vikunni í þeim tilgangi en starf unglingadeildarinnar hefur legið niðri um langt sekið.
Á fundinum var farið yfir það helsta sem verður gert í vetur og auk þess var farið yfir það hvernig unglingastarf innan björgunarsveita virkar, en slíkt starf hefur verið starfrækt hjá björgunarsveitum á svæðinu í kring í fjölda ára og við góðan orðstír. Á næstu mánuðum verður unnið að því að koma fótum undir starf deildarinnar og verða þess vegna 4 til 5 fundir í mánuði fyrir utan ferðalög og aðrar stærri uppákomur.