Ungir og efnilegir bátasmiðir með sýningu
Nemendur í 1. bekk Stóru-Vogaskóla og börn af Staðarborg, elstu deild leikskólans Suðurvalla, opna sýninguna Hafið bláa hafið föstudaginn 13. desember. Sýningin hefst kl. 10:00 í Hlöðunni við Egilsgötu í Vogum. Hún verður einnig opin laugardaginn 14. desember frá kl. 14:00-17:00 og eftir samkomulagi dagana 15.-18. desember. Allir hjartanlega velkomnir.
Mikill undirbúningur og fræðsla
Hafið bláa hafið er samstarfsverkefni Stóru-Vogaskóla og leikskólans Suðurvalla í Vogum en í nóvembermánuði síðastliðnum komu börn úr 1. bekk í Stóru- Vogaskóla og börn af Staðarborg elstu deild leikskólans Suðurvalla saman í hópum og unnu hlið við hlið að bátasmíði. Rætt var við börnin um fiskveiðar við ströndina í Vogunum og á Vatnsleysuströndinni og þeim sýndar myndir af bátum fyrr á tímum. Þau sáu einnig myndir af ýmsum farkostum á hafi við strendur Íslands og rætt var um hlutverk hvers og eins (skútur, trillur, skuttogarar, farþegaferjur, flutningaskip, hvalveiðiskip, varðskip o.s.frv.).
Efnilegir bátasmiðir
Eftir umræður var hafist handa við smíði á litlum bátum og voru útgáfurnar eins margar og börnin sem tóku þátt. Nú þegar bátasmíðinni er lokið bjóða þátttakendur og aðstandendur til sýningar á bátunum í Hlöðunni sem staðsett er við Egilsgötu 8 í Vogunum.
Boðið verður upp á veitingar fyrir gesti, þátttakendur og aðstandendur þeirra. Að endingu munu bátarnir síðan rata aftur í hendur þeirra sem smíðuðu þá og munu vonandi vekja góðar minningar um stundir sem varið var við gerð þeirra. Verkefnið var unnið með það í huga að styrkja sambandið milli grunn- og leikskóla í Vogunum og er styrkt af Menningarsjóði Sambands Sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Nánari upplýsingar um sýninguna og opnunartíma Hlöðunnar eru hér.