Ungir drengir skipulögðu Dekkjakeppni á Ljósanótt
Fjórir drengir í Reykjanesbæ, þeir Gísli Róbert Hilmisson, Aron Örn Hákonarson, Tómas Ingi Magnússon og Valur Þór Hákonarson, hafa skipulagt Dekkjakeppnina sem fram fer í Ungmennagarðinum við 88 Húsið á morgun, fimmtudaginn 1. september klukkan 15:00. Drengirnir hafa komið til fundar við bæjarstjóra og rætt þann möguleika að setja upp innanhússaðstöðu fyrir hjólabrettaíþróttina.
Í Dekkjakeppninni verður keppt með frjálsri aðferð á hjólum, hlaupahjólum, hjólabretti og línuskautum og eru vegleg verðlaun í boði. Skráning verður á staðnum. Nánar má lesa um keppnina á vef Reykjanesbæjar.