Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Mánudagur 25. mars 2002 kl. 16:13

„Ungfrú Ísland er næst á dagskrá“ - segir Berglind Óskarsdóttir, Ungfrú Suðurnes 2002

Berglind Óskarsdóttir nýkrýnd fegurðardrottning Suðurnesja er í skýjunum eftir glæsilegan árangur í fegurðarsamkeppni Suðurnesja sem fram fór sl. laugardag í Bláa lóninu. Hún sagði að kvöldið hefði verið meiriháttar og öll umgjörð í kringum það hin glæsilegasta.

„Það var smá stress í manni til að byrja með en þegar líða tók á kvöldið hvarf það allt enda var gríðarlega gaman að taka þátt í þessu. Fyrsta atriðið, sem var mjög fjörugt, hjálpaði okkur að losa spennuna og róa taugarnar“.

Var mikil stemmning í hópnum?
„Já það var frábær stemmning í hópnum enda náðum við vel saman og hópurinn var mjög samrýmdur. Það var því mikið fjör hjá okkur baksviðs á meðan keppninni stóð“.

Þú byrjaðir á því að fá fyrstu þrjá titlana, Gallerý förðun-, Bláa lóns- og K-Sport stúlkan, hvernig leið þér?
„Ég get í raun ekki lýst því. Ég var bara mjög ánægð en hristist þó og skalf um leið. Það var líka svolítið erfitt að standa þarna ein á sviðinu til að byrja með og ég var rosalega glöð um leið og fleirri stúlkur komu niður“.

En hvernig var svo tilfinningin að vera valin Ungfrú Suðurnes?
„Hún var ólýsanleg, því ég átti alls ekki von á þessu og sérstaklega ekki eftir að hafa fengið hina þrjá titlana. Þetta var mjög gaman og rosalega mikill heiður að fá þetta allt saman“.

Hvernig hafa dagarnir eftir keppnina verið?
„Það hefur verið brjálað að gera og mikill gestagangur verið heima hjá mér. Ég hef þó reynt að taka því rólega enda er maður talsvert þreyttur eftir þetta allt saman“.

Mælirðu með því að stúlkur taki þátt í svona fegurðarsamkeppnum?
„Já ég mæli eindregið með því. Það er rosalega mikið fjör að taka þátt í svona keppnum, maður fær talsverða reynslu, þetta bætir sjálfstraust og framkomu þannig að það er ekkert nema jákvætt um þetta að segja“.

Nú vannst þú Sumarstúlku keppni Séð og Heyrt hér um árið, eru þetta svipaðar keppnir?
„Nei þær eru gjörólíkar því það er miklu meiri undirbúningur og meiri vinna í þessari keppni heldur en Sumarstúlku keppninni“.

Hvað er svo næst á dagskrá?
„Ungfrú Ísland er næst á dagskrá og ætla ég að hafa jafn mikið gaman af þeirri keppni eins og þessari. Sú keppni leggst mjög vel í mig enda fer maður í þetta með jákvæðu hugarfari. Hvað maður gerir svo eftir hana verður tíminn að leiða í ljós“.

Berglind vildi fá að nota tækifærið og þakka öllum þeim sem styrktu keppnina og komu að henni að einhverjum hætti. Sérstaklega vildi hún þó þakka Ágústu og Lovísu sem stóðu á bak við stelpurnar og aðstoðuðu þær frá fyrsta degi.


Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024