Ungar hljómsveitir fá tækifæri á Ljósanótt
Í tengslum við Ljósanótt 2011 verða haldnir tónleikar unga fólksins í Frumleikhúsinu í Reykjanesbæ fimmtudaginn þann 1. september næstkomandi. 88 Húsið skipuleggur tónleikana í samstarfi við Ljósanæturnefnd.
Gert er ráð fyrir að tónlistarmennirnir geti tekið 3-4 lög og eru ungir tónlistarmenn hvattir til að sækja um með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected] - nánari upplýsingar eru veittar í síma 898-1394 hjá Hafþóri.