Ungar athafnakonur láta að sér kveða
Mikið í gangi á komandi vorönn, opnunarviðburður – Hæfni til framtíðar á fimmtudagskvöld
„Ég er opin fyrir tækifærum, treysti á að þau birtist mér en leita þau jafnframt uppi,“ segir hin keflvíska Aðalheiður Júlírós Óskarsdóttir, samskiptastjóri UAK.
UAK, sem stendur fyrir Ungar athafnakonur, er félag sem stofnað var árið 2014 í þeim tilgangi að styðja við bakið á konum sem vilja efla sig í starfi. Helsta markmiðið er að stuðla að jafnrétti, hugarfarsbreytingu og framþróun í samfélaginu. Ung, keflvísk kona, Aðalheiður Júlírós Óskarsdóttir, tók sæti í stjórn félagsins í fyrra og fór yfir stöðu félagsins en fimmtudaginn 19. janúar er fyrsti viðburðurinn á vorönn, opnunarviðburður – Hæfni til framtíðar.
Aðalheiður gegnir stöðu samskiptastjóra hjá UAK. „Það var Lilja Gylfadóttir sem stofnaði UAK árið 2014. Félagið er fyrir konur sem vilja eflast í starfi og skara fram úr á hinum ýmsu sviðum atvinnulífsins. Stundum gætir þess misskilnings að viðkomandi þurfi að vera í atvinnurekstri til að vera í félaginu, það er alls ekki svo. Þetta er vettvangur fyrir konur að eflast og styrkja tengslanetið sitt, félagið heldur alls kyns viðburði í þeim tilgangi. Það er ekkert aldurstakmark í félagið, allar konur geta verið ungar í anda svo þeim er öllum velkomið að ganga til liðs við okkur. Við skiptum árinu upp í annir eins og skólarnir gera, haustönn og vorönn en á henni verða níu viðburðir, sá fyrsti núna á fimmtudagskvöld, opnunarviðburður – Hæfni til framtíðar. Hann fer fram á Grand hótel í Reykjavík og hefst klukkan 20:00 og er opinn öllum sem hafa áhuga á að kynna sér félagið. Tilgangur og markmið þessa viðburðar er að veita félagskonum, og öðrum gestum, innsýn í breyttan vinnumarkað og hvaða skoðanir stjórnendur úr mismunandi geirum atvinnulífsins hafa á hæfni þegar horft er til framtíðar. Við fáum flotta fyrirlesara, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra mun opna dagskrána með hugvekju og Hrund Gunnsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Festu – miðstöðvar um sjálfbærni, Magnús Árnason, fráfarandi framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar og markaðsmála Nova, og Safa Jemai, framkvæmdastjóri og stofnandi Vikonnekt, munu fara með erindi um hvaða hæfni þau telja skipta mestu máli til framtíðar.“
Um 260 konur eru í félaginu í dag og vill Aðalheiður sjá fleiri Suðurnesjakonur ganga til liðs við UAK. „Félagið er á landsvísu en flestir viðburðir fara fram í Reykjavík. Ég fann með sjálfa mig hvað ég styrktist og efldist við að ganga í félagið og sérstaklega þegar ég tók sæti í stjórninni í fyrra. Það að hitta aðrar konur sem stefna hærra er mjög gott og hvetjandi svo ég mæli eindregið með þessum félagsskap. Ég hef sem mottó að vera opin fyrir tækifærum og treysti á að þau birtist mér en er jafnframt að sækja tækifærin. Gott dæmi um þetta er að hafa boðið mig fram í stjórnina í fyrra, það hefur opnað mér nýjar dyr sem annars hefðu verið lokaðar,“ segir Aðalheiður.
Keflavíkurtaugin sterk
Aðalheiður er fædd og uppalin í Keflavík, flutti þrettán ára í Hafnarfjörð en ræturnar toguðu alltaf: „Mér finnst áhugavert að ég er kannski af einni síðustu kynslóðinni sem man eftir því þegar Kaninn var uppi á velli. Þegar ég hef verið að segja fólki í höfuðborginni frá minningum mínum úr æsku þá verður það mjög áhugasamt um þennan veruleika okkar hér. Mér leið stundum nánast eins og ég væri frá öðru landi þegar ég sagði þeim frá heimsóknum með bróður mínum sem vann uppi á velli, á Wendy´s eða fór með honum í carnival, á Halloween eða annað sem var í gangi í þessu ameríska samfélagi við hliðina á okkur. Ég spilaði líka oft fótboltaleiki á móti Könunum uppi á velli en ég æfði fótbolta með Keflavík á þessum tíma en sleit krossbönd sama ár og ég flutti í Hafnarfjörð. Ég hélt samt alltaf áfram að koma í gamla heimabæinn og bjó nánast í ferðatösku um tíma. Það var fínt að búa í Hafnarfirði og það var gott að fá tækifæri til að stækka heiminn aðeins en það er mikilvægt að vera ekki fastur í þægindarammanum. Ég fór svo í FG í framhaldsskóla og þaðan í Háskóla Íslands og kláraði BA í félagsráðgjöf. Eftir nokkur ár í pásu frá skóla fór ég árið 2016 í master í forystu og stjórnun með áherslu á mannauðsstjórnun í háskólanum á Bifröst. Ég bjó einnig um tíma á Ítalíu og Spáni en árið 2016 flutti ég svo aftur „heim“. Það er æðislegt að ala upp börn í þessu góða samfélagi sem Reykjanesbær er og ég vinn hjá sveitarfélaginu þar sem ég gegni stöðu gæðastjóra.“
Tækifæri spretta upp af tengslamyndun
Aðalheiður hvetur allar konur að kynna sér starfsemi UAK og mæta á þennan fyrsta viðburð vorannar. „Það er mjög margt í gangi hjá okkur, á þessari vorönn verða níu viðburðir eða u.þ.b. tveir að meðaltali í mánuði en um er að ræða fjölbreytta viðburði. Einnig verður okkar árlega ráðstefna haldin í Hörpu í vor. Ítarleg dagskrá verður kynnt á opnunarviðburðinum. Allt eru þetta viðburðir sem stuðla að því að auka styrkleika félagskvenna og fylla þær eldmóði. Einnig getur myndast betri tengslamyndun en út frá henni spretta oft upp tækifæri. Þessi félagsskapur hefur gefið mér mjög mikið og ég vil sjá fleiri konur frá Suðurnesjunum, já og alls staðar að, ganga til liðs við okkur,“ sagði Aðalheiður að lokum.