HSS
HSS

Mannlíf

Ung: Vildi geta séð hvað fólk er að hugsa
Sunnudagur 29. apríl 2012 kl. 12:40

Ung: Vildi geta séð hvað fólk er að hugsa



Aníta Lind Fisher er í 9. bekk í Myllubakkaskóla. Hún hefur áhuga á að fara í flugmanninn í framtíðinni og væri til í að hafa ofurkraft sem kallast telepathy.

Hvað gerirðu eftir skóla?
Fer á æfingu eða í píanótíma, hitti vinina ef ég hef tíma. Svo finnst mér best að slaka á á kvöldin.

Hver eru áhugamál þín?
Íþróttir, tónlist og ég hef áhuga á fluginu líka.

Uppáhaldsfag í skólanum?
Íþróttir og lífsleikni eru uppáhaldsfögin.

En leiðinlegasta?
Danska, við erum samt með frábæran kennara en tungumálið er ekki mín sterkasta hlið.

Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?

Kjötsúpan hjá ömmu hefur verið í uppáhaldi síðan ég man eftir mér.

En drykkur?
Íslenska vatnið er alltaf best.

Ef þú gætir hitt einhvern frægan, hver væri það?

Beyonce Knowles

Ef þú gætir fengið einn ofurkraft hver væri hann?

Það væri ekki leiðinlegt að hafa einn sem kallast telepathy, ef þú hefur þennan hæfileika þá geturðu séð hvað fólk hugsar.

Hvað er draumastarfið í framtíðinni?
Ég stefni á flugmanninn.

Hver er frægastur í símanum þínum?
Þau eru nokkur fræg, Thelma, Elfa, Andrea, Leonard, Marvin og Inga eru þau helstu.

Hver er merkilegastur sem þú hefur hitt?
Hef ekki beint hitt neinn sem er merkilegri en einhver annar, en það var ekki leiðinlegt að sjá Katy Perry síðasta sumar.

Hvað myndirðu gera ef þú mættir vera ósýnileg í einn dag?
Ég mundi taka hana Helenu Rós vinkonu mína á þetta og prófa að labba á vegg og athuga hvort ég kæmist í gegnum hann.

Bílakjarninn
Bílakjarninn