UNG: Veðurfréttir lýsa mér best
Snædís Glóð Vikarsdóttir er nemandi á leið í 10. bekk í Heiðarskóla. Henni langar að verða sálfræðingur. Hún segist vera stórskrýtin og sprenghlægileg og segir að Þorgrímur Þráinsson vera goðsögn.
Hvað geriru eftir skóla?
Fæ mér að borða og kúri kannski smá, fer svo á æfingu.
Hver eru áhugamál þín?
Fimleikar, tónlist og fjölskyldan.
Uppáhalds fag í skólanum?
Stærðfræði og íþróttir.
En leiðinlegasta?
Samfélagsfræði og náttúrufræði.
Ef þú gætir hitt einhvern frægan, hver væri það?
Cody Simpson klárlega!
Ef þú gætir fengið einn ofurkraft hver væri hann?
Lesa hugsanir væri fínt.
Hvað er draumastarfið í framtíðinni?
Langar að verða sálfræðingur.
Hver er frægastur í símanum þínum?
Er með fullt af framtíðarcelebum.
Hver er merkilegastur sem þú hefur hitt?
Ég hef hitt slatta af frægu fólki t.d. Justin Bieber, Cody Simpson og Eminem en merkilegasta fólkið hitti ég daglega.
Hvað myndiru gera ef þú mættir vera ósýnilegur í einn dag?
Aldrei að vita hverju ég tæki uppá.
Hvernig myndiru lýsa fatastílnum þínum?
Þægilegur.
Hvernig myndiru lýsa þér í einni setningu?
Stórskrítin og sprenghlægileg.
Hvað er skemmtilegast við Heiðarskóla?
Félagsskapurinn.
Hvaða lag myndi lýsa þér best?
I Believe In Miracles með Hot Chocolate.
Hvaða sjónvarpsþáttur myndi lýsa þér best?
Veðurfréttir.
Besta:
Bíómynd?
Bangsímon.
Sjónvarpsþáttur?
Allt nema það sem mamma horfir á.
Tónlistarmaður/Hljómsveit?
Cody Simpson er í miklu uppáhaldi þessa dagana.
Matur?
Pítsa, mjög basic bara.
Drykkur?
Vatn.
Leikari/Leikkona?
Enginn sérstakur svosem.
Fatabúð?
Forever 21 kemur sterk inn.
Vefsíða?
Facebook og Instagram er partur af deginum haha.
Bók?
Flestar bækur eftir Þorgrím Þráinsson, hann er goðsögn.