Ung Suðurnesjasöngkona vinsæl á Youtube
Perla Sóley leikur Sandy í Grease hjá Leikfélagi Keflavíkur í haust
Ung stúlka úr Njarðvíkurskóla hefur vakið nokkra athygli á veraldarvefnum en hún setur inn myndönd af sér á Youtube þar sem hún syngur þekkt lög. Perla Sóley Arinbjörnsdóttir er nemandi í söngskóla Bríetar Sunnu en hann hefur einmitt verið starfræktur á Ásbrú í tæpt ár. Þar getur fólk á öllum aldri lært að syngja og er áhersla lögð á annars konar söng en klassískan söng. Í söngskólanum er m.a. unnið í raddþjálfun, sviðsframkomu og textatúlkun.
Perla Sóley hefur hlotið hlutverk Sandy í söngleiknum Grease sem setja á upp í haust af Leikfélagi Keflavíkur og hér fyrir neðan er einmitt hægt að sjá Perlu syngja lagið „Von og þrá“ sem er úr söngleiknum. Fleiri myndbönd má sjá á Youtube undir heitinu Perla Sóley.