UNG: Stefni á flugmanninn
Elsa Júlíusdóttir er nemandi í 10. bekk í Heiðarskóla. Hana langar að geta lesið hugsanir og segir að tónlist og vinir séu hennar áhugamál. Hún segir að fatastíllinn hennar sé ákaflega þægilegur og að íslenska sé leiðinlegasta fagið í skólanum.
Hvað gerirðu eftir skóla? Fer oftast bara heim að sofa eða fer og hitti vini mína.
Hver eru áhugamál þín? Tónlist og vinir!
Uppáhalds fag í skólanum? Samfélagsfræði og Íþróttir eru í uppáhaldi.
En leiðinlegasta? Klárlega íslenska.
Ef þú gætir hitt einhvern frægan, hver væri það? Kanye West og allir úr Kardashian fjölskyldunni.
Ef þú gætir fengið einn ofurkraft, hver væri hann? Lesa hugsanir allan daginn!
Hvert er draumastarfið? Er að stefna á flugmanninn.
Hver er frægastur í símanum þínum? Bestu vinkonurnar mínar, Guðný og Emilíana.
Hver er merkilegastur sem þú hefur hitt? Örugglega bara Frank Ocean og Tinie Tempah.
Hvað myndirðu gera ef þú mættir vera ósýnilegur í einn dag? Ég myndi örugglega bara byrja að flippa í fólki.
Hvernig myndirðu lýsa fatastílnum þínum? Bara eins þægilegt og hægt er.
Hvernig myndirðu lýsa þér í einni setningu? Lífsglöð, traust og held hópnum lifandi.
Hvað er skemmtilegast við Heiðarskóla? Klárlega starfsfólkið og krakkarnir!
Hvaða lag myndi lýsa þér best? I still haven't found what im looking for með U2.
Hvaða sjónvarpsþáttur myndi lýsa þér best? Workaholics myndi lýsa mér best.
Besta:
Bíómynd? Pineapple Express klikkar aldrei.
Sjónvarpsþáttur? Breaking Bad, Prison Break, The Walking Dead og Keeping Up With The Kardashians.
Tónlistarmaður/Hljómsveit? Coldplay, Kanye West og The Weeknd.
Matur? Kjúklingapasta hjá mömmu er best.
Drykkur? Ískalt Fanta exotic og vatn.
Leikari/Leikkona? Leonardo DiCaprio,Bryan Cranston og Seth Rogen
Fatabúð? H&M er í uppáhaldi
Vefsíða? Facebook og YouTube
Bók? The Fault In Our Stars er góð.