Bygg
Bygg

Mannlíf

UNG: Kann ekkert í dönsku
Miðvikudagur 2. júlí 2014 kl. 15:56

UNG: Kann ekkert í dönsku

Arnór Sveinsson er nemandi á leið í 9. bekk í Heiðarskóla. Helstu áhugamál hans eru körfubolti og fótbolti. Hann væri til í að geta flogið og hitta Michael Jordan

Hvað geriru eftir skóla?
Klára læra og fer á æfingar.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Hver eru áhugamál þín?
Körfubolti og fótbolti.

Uppáhalds fag í skólanum?
Stærfræði er skemmtileg.

En leiðinlegasta?
Danskan, ég kann ekkert í dönsku.

Ef þú gætir hitt einhvern frægan, hver væri það?
Michael Jordan, allan daginn.

Ef þú gætir fengið einn ofurkraft hver væri hann?
Það væri svakalegt að geta flogið, þá gæti ég troðið frá þriggja stiga línunni.

Hvað er draumastarfið í framtíðinni?
Atvinnumaður í körfubolta.

Hver er merkilegastur sem þú hefur hitt?
Christian Eriksen.

Hvað myndiru gera ef þú mættir vera ósýnilegur í einn dag?
Laumast í banka og fara út með nokkra seðla.

Hvernig myndiru lýsa fatastílnum þínum?
Bara venjulegur. Hef reyndar aldrei pælt í því.

Hvernig myndiru lýsa þér í einni setningu?
Ég er frekar skrýtinn gaur.

Hvað er skemmtilegast við Heiðarskóla?
Starfsfólkið er vinalegt.

Hvaða lag myndi lýsa þér best?
I Belive i Can Fly.

Hvaða sjónvarpsþáttur myndi lýsa þér best?
NBA þátturinn sem Shaq er í.

Besta:

Bíómynd?
We're The Millers.

Sjónvarpsþáttur?
Family Guy.

Tónlistarmaður/Hljómsveit?
Jón Jónsson er flottur.

Matur?
Pizza klikkar aldrei.

Drykkur?
Vatn.

Leikari/Leikkona?
Will Ferrell.

Lið í Ensku deildinni?
Liverpool.

Lið í NBA?
Chicago Bulls.

Vefsíða?
NBA.com