HSS
HSS

Mannlíf

Undirbýr jólin allan ársins hring
Ingibjörg stendur við það sem hefur verið jólatréð hjá henni síðustu árin. Hver einasti flötur í íbúðinni er nýttur undir fallegt jólaskraut.
Sunnudagur 20. desember 2015 kl. 06:00

Undirbýr jólin allan ársins hring

Sannkallað jólahús í Garðinum hjá Ingibjörgu

Alveg frá janúarmánuði situr Ingibjörg Gestsdóttir með prjónana í höndunum eða við saumaskap. Þá hefst hinn eiginlegi jólaundirbúningur. Barna- og barnabarnabörn þurfa jú öll að fá sínar gjafir sem allar eru handgerðar af ömmu. Barnabörnin eru átta og langömmubörnin níu talsins, svo eru tvö á leiðinni. Það er því nóg að gera. Hún fór að prjóna jólagjafirnar um leið og barnabörnin komu til sögunnar.

Hún lætur sér ekki nægja að prjóna peysur, sem oftast verða fyrir valinu, heldur gerir hún sínar eigin gjafapakkningar líka. Hún gafst upp á þessum einnota umbúðum fyrir mörgum árum síðan. Þær enduðu bara í ruslinu og voru tættar niður í öllum hamagangnum á jólunum. Nú saumar hún poka sem eru sniðnir eftir höfði hvers og eins. Sumir fá bílapoka, aðrir Barbie-poka og enn aðrir fá fótboltakappa á sinn poka. Pokarnir eru vinsælir og nýttir vel eftir að jólunum lýkur.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Vinkonurnar búa til jólaskraut á haustin

Ingibjörg er fædd og uppalin í Leirunni, á Gufuskálum, en hún hefur búið í Garðinum allt frá því að hún fór að búa. Hús Ingibjargar við Fríholtið í Garðinum er þakið jólaskrauti að innan. Hún hefur verið dugleg að sanka að sér skrauti alls staðar að, allt frá því hún byrjaði að búa fyrir um hálfri öld síðan. Hún gerir mikið af sínu skrauti sjálf. Vinkonurnar hafa hist reglulega á haustin í gegnum árin og útbúið jólaskraut af öllum toga. Skrautið fær svo að njóta sín á heimilum þeirra. Hún segir þó að skrautið komist ekki nærri allt fyrir heima. Mikið af því sé í kössum og uppi í skápum en sumu skrautinu hefur hún reynt að koma yfir til barna sinna. Hún segir áhugann á jólaskrautinu hafi kviknað eftir að þær vinkonur fóru að hittast og útbúa sitt skraut.

„Mér finnst svo gaman að sitja inni í vinnuherbergi á kvöldin og sauma. Ég nenni svo ekki að sitja yfir sjónvarpinu öðruvísi en að vera með prjóna,“ segir Ingibjörg. Hún prjónar ekki eftir uppskriftum en þó komi fyrir að þær séu hafðar til hliðsjónar. Hún prjónar peysur í öllum regnbogans litum og mynstrin eru ótalmörg. Hún segist vera fremur glysgjörn og það má vel merkja á litadýrðinni

Ljósin mikilvæg í desember

Ingibjörg segist vera mikið jólabarn. Þegar hún var að vinna hjá Póstinum hér áður fyrr þá gladdi það hana óskaplega þegar farið var að setja upp og kveikja á jólaljósunum. Þegar hún bregður sér af bæ og skreppur erlendis þá finnst henni nauðsynlegt að kaupa skemmtilegt jólaskraut sem minjagripi sem sjá má víða á hennar heimili. Meðfylgjandi myndir sýna greinilega hversu huggulegt og jólalegt er hjá Ingibjörgu.


Ingibjörg heldur mikið upp á þennan jólasvein sem maðurinn hennar heitinn keypti. Hún segir að í seinni tíð hafi hann orðið mikill jólakarl sjálfur.


Barnabörnin fá glæsilegar peysur um jólin.

Öllu saman er svo pakkað í sérstaka jólapoka sem Ingibjörg saumar sjálf.

Myndir: Eyþór Sæm.