Bygg
Bygg

Mannlíf

Fimmtudagur 24. júlí 2003 kl. 17:51

Undirbúningur ljósanætur 2003 gengur vel

Undirbúningur Ljósanætur, sem fram fer dagana 3.-6. september, er í fullum gangi að sögn Steinþórs Jónssonar formanns undirbúningsnefndar. Nú er m.a. frestur útrunninn til að skila inn lögum í Ljósalagskeppnina og verið er að ganga frá staðfestingu á helstu viðburðum hátíðarinnar.Alls bárust 84 lög í Ljósalagskeppnina og er Steinþór ánægður með afraksturinn. “Ég er bæði ánægður með þann fjölda laga sem barst inn og hve mörg þeirra eru mjög góð. Við berum því miklar væntingar til lagsins í ár og munum gera allt í okkar valdi til að þessi tónlistaruppákoma takist sem best en nú er sérstök ástæða til að gera tónlistinni hátt undir höfði því í ár verða Hljómar 40 ára eins og allir vita." Sérstök Ljósalagsnefnd hefur verið skipuð sem er í nánu samstarfi við undirbúningsnefndina. Að sögn Steinþórs er töluverð vinna í kringum þennan viðburð í ár enda hefur sú breyting orðið á að nefndin sér um aðalumgjörð keppninnar í stað þess að fá einn framkvæmdaaðila til þess eins og gert var í fyrra. Nefndin mun velja 10 lög úr þeim sem send voru inn og verða þau gefin út á geisladisk 20. ágúst. Fólk getur keypt diskinn og byrjað að hita upp en lagið verður valið með viðhöfn laugardagskvöldið 5. september á stórdansleik í Stapanum og þar geta gestir tekið þátt í að velja lagið.
Hvað varðar annan undirbúning þá segir Steinþór að verið sé að leita eftir menningar- og íþróttaviðburðum þessa daga og er þegar komin einhver mynd á dagskránna. “M.a. er áætluð hnefaleikakeppni á fyrsta degi hátíðarinnar, þ.e. fimmtudeginum, í Stapa. Á föstudagskvöldinu verður svo áður nefndur stórdansleikur í Stapa með mat og öllu tilheyrandi. Hápunkturinn verður svo að sjálfsögðu á laugardeginum 6. september eins og fyrri ár en á sunnudeginum munu svo Keflavík og Njarðvík keppa sín á milli í knattspyrnu í fyrstu deildinni og ætlunin er að byggja upp stemningu í kringum þennan leik með Ljósanætur yfirbragði." Steinþór segir að á hátíðinni muni allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi og hvetur bæjarbúa til að koma með ferkari hugmyndir um viðburði. Vefur Ljósanætur hefur verið uppfærður og þar er hægt að koma hugmyndum á framfæri auk þess sem að spjallþráður verður opnaður á síðunni í næstu viku.
Í gegnum árin hafa einhvers konar framkvæmdir alltaf tengst hátíðinni og í þetta sinn mun efri hluti nýrrar Hafnargötu meðal annars vera tekinn í notkun á Ljósanótt. “Þá höfum við sagt í gríni að uppfyllingin í Keflavíkinni sé fyrst og fremst gerð til að anna mannfjöldanum á hátíðinni og sé því dýrasta svið sem gert hefur verið fyrir hátíð sem þessa!" segir Steinþór.
“Í dag erum við m.a. að leita eftir styrkjum frá fyrirtækjum bæði með framlögum og með uppákomum í sínu fyrirtæki og vil ég hvetja fyrirtæki til að koma með hugmyndir um viðburði hjá sér sem allra fyrst til ljósanefndar," segir Steinþór að lokum.

Hægt er að nálgast allar upplýsingar um hátíðina á heimasíðu hennar.
Slóðin er www.ljosanott.is
Bílakjarninn
Bílakjarninn