Umhverfisviðurkenningar veittar í Vogum - myndir
Umhverfisviðurkenningar Sveitarfélagsins Voga 2010 voru veittar á Fjölskyldudeginum um síðustu helgi. Fallegum og vel hirtum húsum og görðum fjölgar stöðugt í sveitarfélaginu og var umhverfisnefnd því vandi á höndum við val sitt.
Sæmundur Þórðarson og Anna María Franksdóttir á Stóru-Vatnsleysu fengu viðurkenningu fyrir snyrtimennsku og frjóa hugsun í garðskreytingum. Þau hafa hugsað vel um þetta merka útvegsbýli og forna kirkjustað og miðla þekkingu um sögu staðarins.
Eyrún Antonsdóttir og Sverrir Agnarsson, Aragerði 16, fengu viðurkenningu fyrir frumlegan og fjölbreytilegan garð til margra ára.
Bryndís Petersen og Leifur Jónsson Brekkugötu 23 fengu viðurkenningu fyrir fallegan garð og snyrtilegt hús.
Íbúar Heiðargerðis sunnan Ægisgötu fengu viðurkenningu fyrir fallega og snyrtilega götumynd.
Starfsfólk Heilsuleikskólans Suðurvalla fékk viðurkenningu fyrir góðar hugmyndir og aðkomu að vel heppnaðri hönnun lóðar leikskólans.
Viðurkenningu fyrir gagngerar og smekklegar endurbætur gamals og sögufrægs húss fékk Reykjaprent, eigandi Hábæjar. Syðri hluti Hábæjar var byggður 1921 á grunni eldra húss. Þarna var símstöðin í Vogum 1908-1930 og aftur 1932-1952. Þangað kom fyrsta útvarpið í hreppinn 1926. Sagt er að húsið hafi fyllst á sunnudögum þegar fólk af öðrum bæjum dreif að spariklætt til að hlusta á messu. Í Hábæ var sett upp fyrsta verslunin í Vogum árið 1929 og var hún starfrækt í þessu húsi þar til 1968. Hábær var þannig eins konar miðbær Voga hálfa síðustu öld.
Efsta mynd: Umhverfisverðlaun Voga voru afhent á Fjölskyldudeginum. VFmynd/elg.
Hábær er sögufrægt hús sem fengið hefur smekklega andlitslyftingu. VFmynd/elg.
Brekkugata 23 fékk viðurkenningu fyrir fallegan garð og snyrtilegt hús. VFmynd/elg.
Úr garðinum við Aragerði 16. VFmynd/elg.