HSS
HSS

Mannlíf

Umboðsmaður Íslands og Maggi Kjartans í Leirunni
Þriðjudagur 28. október 2008 kl. 16:07

Umboðsmaður Íslands og Maggi Kjartans í Leirunni


Einar Bárðarson, umboðsmaður Íslands og Keflvíkingurinn og tónlistarmaðurinn Magnús Kjartansson verða aðal númerin á herrakvöldi Golfklúbbs Suðurnesja sem haldið verður föstudagskvöldið 14. nóv. nk.

Að vanda verða sjávarréttir bornir fram og munu þeir félagar, Einar og Magnús sjá um að skemmta gestum sem ættu ekki að verða fyrir vonbrigðum. Má alveg eins eiga von á hörku samkeppni milli þessara kappa sem eru vanir að fá athygli þegar þeir tala eða gera.
Einar er nýfluttur til Reykjaensbæjar ólikt Magga sem er uppalinn á mölinni í Keflavík en flutti rétt rúmlega óharðnaður unglingur í þáverandi smábæinn Hafnarfjörð og hefur búið þar nokkuð lengi.
Gylfi Kristinsson, fráfarandi framkvæmdastjóri GS (s. 898-1009) og Sigurður Garðarsson (s. 892-1771) og skrifstofa Víkurfrétta (s. 421-0000) taka við skráningu og selja miða. Þetta verður eitt af kvöldum kreppu-haustsins.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Einar Bárðarson með Garðari Cortes á góðri stundu. Maggi Kjartans á hinni myndinni í „ðe gúd óld deis“.