Um 500 manns mættu í Gönguhátíð Grindavíkur
„Í lok gönguferða voru ýmsir viðburðir, söngur og gítarspil á nýja tjaldsvæðinu í Grindavík, kaffi á Ísólfsskála, grillað lamb í Salthúsinu og boðið upp á tvo fyrir einn í Bláa lónið. Göngufólk skoðaði Saltfisksetrið og nýtti aðra þjónustu í Grindavík. Alls mættu um 500 manns í göngurnar fjórar,“ segir Sigrún sem var ánægð með þátttökuna.
Hátíðin var liður í viðburða- og menningardagskrá Saltfisksetursins og Grindavíkur. Sigrún segir að hátíðin hafi verið vel kynnt í fjölmiðlum og um og yfir 100 manns mættu í hverja ferð. Auk Sigrúnar sá Ómar Smári Ármannsson einnig um leiðsögn ásamt því að skrifa um hverja ferð og setja inn myndir sem sjá má á ferlir.is. Magnús Hákon Axelsson, leiðsögumaður rak lestina.
Leiðsögumönnum, styrktaraðilum og öllu göngufólki er þökkuð þátttakan. Hægt er að fylgjast með áframhaldandi ferðum í gönguverkefninu AF STAÐ á Reykjanesið á www.sjfmenningarmidlun.is
Frá þessu er greint á vef Grindavíkurbæjar, www.grindavik.is
