Úlfur Úlfur með nýtt lag
Úlfur Úlfur er nýtilkomin rapphljómsveit sem samanstendur af þremur metnaðarfullum piltum. Einn þeirra er frá Suðurnesjum og heitir Þorbjörn Einar Guðmundsson. Á sínum stutta starfsferli hafa þeim sent frá sér hvert lagið á fætur öðru og spilað á tónleikum ásamt ólíkum tónlistarmönnum; allt frá Agent Fresco og For a minor Reflection til Friðriks Dórs og Jóns Jónssonar. Margt er í bígerð hjá þeim drengjum, þ.á.m. samstarf við nokkra landskunna artista, tónleikar og auðvitað það sem öllu máli skiptir: fleiri lög.
Um næstkomandi helgi kemur Úlfur Úlfur fram á tónlistarhátíðinni Gærunni sem haldin er á Sauðárkróki. Ásamt þeim koma m.a. fram Valdimar, Blaz Roca, Múgsefjun, Emmsjé Gauti og Geirmundur Valtýsson. Helgina eftir það, föstudaginn 19. Ágúst, munu þeir svo spila á kveðjutónleikum Rökkurró sem haldnir verða á Faktorý.
Nú hafa þeir sent frá sér myndband við glænýtt lag sem ber heitið Lupus lupus.