HSS
HSS

Mannlíf

Týndi trúlofunarhring við tjörnina á Fitjum
Óskandi er að enginn fuglanna hafi gleypt hringinn.
Mánudagur 5. janúar 2015 kl. 10:15

Týndi trúlofunarhring við tjörnina á Fitjum

Fundarlaun í boði fyrir fundvísan vegfaranda.

Rétt eftir áramót fór Njarðvíkingur með ungan son sinn að gefa fuglunum brauð hjá Fitjum. Svo óheppilega vildi til að þegar maðurinn henti brauðinu til fuglanna losnaði trúlofunarhringur af fingri hans. Þrátt fyrir leit á svæðinu fann hann ekki hringinn. 

Maðurinn biðlar til fólks um að hafa augun opin á þessu svæði og ef það verður vart við þykkan hring úr gulli og hvítagulli um að koma honum til skrifstofu Víkurfrétta. Fundarlaun eru í boði.

Bílakjarninn
Bílakjarninn