Tvöhundruð ár á sjó
Á Sjómanndaginn þann 3. júní sl. voru heiðraðir fimm sjómenn frá Grindavík.
Heiðrunin fór fram við hátíðlega athöfn í Grindavíkurkirkju í sjómannamessu dagsins.
Séra Elínborg Gísladóttir þjónaði fyrir altari og kór Grindavíkurkirkju leiddi söng
undir stjórn Erlu Rutar Káradóttur organista, þeim til halds og traust voru þau Leifur Guðjónsson sjómaður sem flutti ræðu sjómannsins og sjómannshjónin Kristmundur Óli Jónsson og Ásdís Ester Kristinsdóttir fluttu ritningarlestra. Sonur þeirra Tómas Darri Kristmundsson bar krans til minningar um drukknaða sjómenn og týnda.
Lúðrasveit verkalýðsins tók þátt í athöfninni og flutti m.a Suðurnesjamenn og Brennið þið vitar og leiddi svo fjölmenna skrúðgöngu að minnisvarðanum Von.
Meðal gesta í Grindavíkurkirkju var forsætisráðherra Íslands, Katrín Jakobsdóttir en hún flutti ræðu Sjómannadags á hátíðarsvæði eftir messu. Forseti Íslands hr.Guðni TH Jóhannesson tók þátt í skrúðgöngu að minnisvarðanum Von og sameinaðist gestum á hátíðarsvæði. Guðni og Katrín tóku einnig þátt í hátíðarhöldum sjómannafélagsins í Víðihlíð dvalarheimili aldraðra í Grindavík.