Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Tvífari Johnny Depp staddur á Suðurnesjum
Þessa mynd tók Magnús Þórisson, veitingamaður, af starfsstúlkum sínum með tvífara Johnny Depp.
Þriðjudagur 25. september 2012 kl. 14:37

Tvífari Johnny Depp staddur á Suðurnesjum

Sænskur tvífari Johnny Depp, hinn 47 ára gamli Seba Alon, hefur vakið mikla athygli í Reykjanesbæ í gærkvöldi og í dag. Fjölmörg ungmenni hafa talið sig sjá Johnny Depp á ferli á Hafnargötunni og hópuðust um kappann til að fá af sér myndir með honum.

Þá birtist hann einnig á veitingastaðnum Réttinum við Hafnargötu þar sem hann var myndaður með starfsstúlkum staðarins.

Tvífarinn er hér á landi til að leika í kvikmynd Ben Stiller, The Secret Life af Walter Mitty, sem þessa dagana er verið að taka upp í Garðinum.

Hér er fjallað um tvífarann í sænskum miðli.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Í sænskum miðlum er fjallað um tvífarann á Íslandi.