Tvær sýningar um herstöðina og Ásbrú opnaðar
Listasafn Reykjanesbæjar opnaði um nýliðna helgi ljósmyndasýninguna ICELAND DEFENSE FORCE – ÁSBRÚ í sýningarsal safnsins í Duus Safnahúsum. Þá opnaði Byggðasafn Reykjanesbæjar á sama tíma sýninguna „Herstöðin sem kom og fór“ í Gryfjunni í Duus Safnahúsum.
„Ára“ yfirgefinna staða er framar öðru viðfangsefni Braga Þórs Jósefssonar ljósmyndara í þessari myndröð sem sýnd er en flestar myndirnar tók Bragi á Keflavíkurflugvelli í kjölfar brottflutnings hersins árið 2006.
Sýningin „Herstöðin sem kom og fór“ fjallar um sögu Keflavíkurstöðvarinnar sem hófst á stríðsárunum með byggingu tveggja flugvalla, rúmlega hálfrar aldar sögu varnarliðsins og hvað gerðist eftir að herstöðin lokaði, en í ár eru 10 ár liðin síðan herstöðinni var lokað.