HSS
HSS

Mannlíf

Tvær sýningar um herstöðina og Ásbrú opnaðar
Frá ljósmyndasýningunni í Listasafni Reykjanesbæjar. VF-mynd: Hilmar Bragi
Mánudagur 8. febrúar 2016 kl. 10:40

Tvær sýningar um herstöðina og Ásbrú opnaðar

Listasafn Reykjanesbæjar opnaði um nýliðna helgi ljósmyndasýninguna ICELAND DEFENSE FORCE – ÁSBRÚ í sýningarsal safnsins í Duus Safnahúsum. Þá opnaði Byggðasafn Reykjanesbæjar á sama tíma sýninguna „Herstöðin sem kom og fór“ í Gryfjunni í Duus Safnahúsum.

„Ára“ yfirgefinna staða er framar öðru viðfangsefni Braga Þórs Jósefssonar ljósmyndara í þessari myndröð sem sýnd er en flestar myndirnar tók Bragi á Keflavíkurflugvelli í kjölfar brottflutnings hersins árið 2006.

Sýningin „Herstöðin sem kom og fór“ fjallar um sögu Keflavíkurstöðvarinnar sem hófst á stríðsárunum með byggingu tveggja flugvalla, rúmlega hálfrar aldar sögu varnarliðsins og hvað gerðist eftir að herstöðin lokaði, en í ár eru 10 ár liðin síðan herstöðinni var lokað.


 

Bílakjarninn
Bílakjarninn