Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Tvær hernaðarlegar leiðsagnir í Duus Safnahúsum á sunnudag
Föstudagur 11. mars 2016 kl. 10:02

Tvær hernaðarlegar leiðsagnir í Duus Safnahúsum á sunnudag

Í tilefni Safnahelgar á Suðurnesjum er boðið upp á tvær áhugaverðar leiðsagnir í Duus Safnahúsum á sunnudag.

Klukkan 14:00 verður Sigrún Ásta Jónsdóttir, safnstjóri Byggðasafns Reykjanesbæjar, með leiðsögn um sýningu safnsins, Herinn sem kom og fór, en sýningin segir sögu rúmlega hálfrar aldar veru ameríska hersins á Keflavíkurflugvelli og hvað gerðist þegar stöðin lokaði og herinn fór.

Klukkan 15:00 verður Bragi Þór Jósefsson, ljósmyndari, með leiðsögn um sýningu sína Iceland Defense Force - Ásbrú í sýningarsal Listasafnsins. „Ára yfirgefinna staða“ er viðfangsefni Braga í myndröðinni. Ljósmyndirnar á sýningunni eru teknar á árunum 2006-2016, flestar í kjölfar brottflutnings hersins árið 2006 og svo síðar á Ásbrú, eins og svæðið heitir núna.
 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024