Trónir á toppnum á Rás 2
- yfir minnst spilaða nýja íslenska tónlist
Listamaðurinn Guðmundur R Lúðvíksson segist vera stoltur í dag. Hann tróni á toppnum hjá Rás 2. Það toppsæti sé hins vegar yfir minnst spilaða nýja íslenska tónlist á útvarpsstöðinni.
Í færslu á fésbókinni í morgun segir Guðmundur að 30 diskar hið minnsta hafi farið til Rásar 2 en sennilega hafi 29 diskar úr sendingunni glatast.
Listamaðurinn Guðmundur R Lúðvíksson hefur sent frá sér nýjan geisladisk sem ber heitið Ástin er undarleg. Á disknum eru 10 ný lög við texta eftir hann sjálfan sem og Kristján Hreinsson og einn texti eftir Guðjón Weihe.
Þeir sem koma fram við hljóðfæraleik á disknum eru Vilhjálmur Guðjónsson, Bjarni Sveinbjörnsson,
Geir Ólafsson, Ástvaldur Traustason, Birgir Nielsen, Guðmundur Steingrímsson, Kjartan Már Kjartansson.