Troðið út úr dyrum á U2 messu
Færri komust að en vildu og margir þurftu frá að hverfa þegar loka U2 messan var haldin í Keflavíkurkirkju í kvöld. Kirkjubekkirnir voru þétt setnir, setið á stólum í anddyrinu og jafnvel kórloftið var troðið af áhorfendum.
Síðustu tónleikar kórs Keflavíkurkirkju, þar sem flutt voru U2 lög var í kvöld í Keflavíkurkirkju. Húsfyllir var orðinn hálftíma fyrir tónleika. Það var líka vel tekið undir í kirkjunni, staðið og klappað og jafnvel sungið, enda verið að flytja þekkt lög þar sem allir gátu tekið undir.
Meðfylgjandi myndir voru teknar í Keflavíkurkirkju í kvöld. Myndskeið frá tónleikunum verður birt í Sjónvarpi Víkurfrétta hér á vf.is á morgun, mánudag.
VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson
Það var mikil ljósadýrð í Keflavíkurkirkju í kvöld.