Tosca í Keflavíkurkirkju með íslenskum skjátexta
Undirbúningur að Óperunni Toscu eftir Giacomo Puccini í Keflavíkurkirkju er í fullum gangi. Tosca er ein frægasta og vinsælasta ópera allra tíma. Þessi rómantíska ópera fjallar um ástir og afbrýði, sem endar með ósköpum. Óperan Tosca hefur að geyma stórkostlega tónlist og margar af fallegustu aríum óperubókmenntanna svo sem: Recondita armonia, Vissi d’arte, Te Deum og E lucevan le stelle – eða Turnaríuna. Fyrir þá sem ekki skilja stakt orð í ítölsku, þá er íslenskum texta varpað upp á veggi kirkjunnar, svo allir skilji um hvað er sungið.
Það er óperufélagið Norðuróp sem stendur fyrir uppfærslunni í samvinnu við Tónlistarfélag Reykjanesbæjar, sönghópinn Orfeus, kór Keflavíkurkirkju og o.fl. Í aðalhlutverkum eru Bylgja Dís Gunnarsdóttir sem Tosca, Jóhann Friðgeir Valdimarsson sem Cavaradossi, Jóhann Smári Sævarsson sem Scarpia, Bergþór Pálsson sem Angelotti, Bragi Jónsson sem Sacristan og Sciaronne, Magnús Guðmundsson sem Spoletta, Rósalind Gísladóttir og Kristján Þorgils Guðjónsson.
Fyrsti þáttur óperunnar verður fluttur í Keflavíkurkirkju, annar þáttur í safnaðarheimili Keflavíkurkirkju og sá þriðji í garðinum þar á milli. Áhorfendur flytja sig á milli rýma milli þátta og taka þannig virkan þátt í sýningunni. Óperan er flutt á ítölsku með píanó-, orgel-, flautu- og slagverksundirleik. Íslenskum texta er varpað upp á veggi kirkjunnar, svo allir skilji um hvað er sungið. Tónlistarstjóri er Antonia Hevesi og leikstjóri er Jóhann Smári Sævarsson.
Frumsýning er á morgun, 12. ágúst og önnur sýning sunnudaginn 14. ágúst. Miðasala er hafin á midi.is