Torkennileg merking á Keflavíkurflugvelli: Er von á geimskipi?
Nú er það spurning hvort von sé á geimskipi til lendingar á Keflavíkurflugvelli. Að minnsta kosti hafa verið málaðar torkennilegar merkingar á flughlaðið eins og sjá má á meðfylgjandi myndum sem „starfsmaður á plani“ tók og sendi til Víkurfrétta.
Hugsanlega á þetta að vera talan 16, nú eða bara eitthvað annað torkennilegt tákn sem aðeins flugmenn þekkja. Kannski eru bara grænir karlar á leiðinni til Keflavíkurflugvallar og þá er þetta staðurinn til að leggja geimskipinu...