Tónsmiðja í Reykjanesbæ
Í febrúarmánuði hafa allir nemendur Tónlistarskóla Reykjanesbæjar 8 ára og eldri verið að vinna ákveðið þema, sem hlotið hefur heitið Tónsmiðjan.Markmiðið með Tónsmiðjunni er að örva sköpun í skólastarfinu með því að nemendur semji tónlist skrifi hana niður og frumflytji að lokum lagið sitt á tónleikum. Með Tónsmiðjunni er skólinn að skapa nemendum sínum tækifæri til við vinna með þau atriði sem aðalnámskrá tónlistarskóla kveður á um varðandi tónsköpun og um leið að vekja og efla áhuga nemenda fyrir eigin tónsköpun. Þótt aðalnámskrá tónlistarskóla hafi ekki enn öðlast formlegt gildi, er þetta mikilvægur þáttur í tónlistaruppeldi nemenda sem Tónlistarskólinn vill taka strax á og því fyrr sem nemendur ná tökum á að koma tónhugmyndum sínum frá sér á markvissan og skipulagðan hátt, því betra.Tónsmiðjan er jafnframt tónsmíðasamkeppni, þar sem allir fá viðurkenningu fyrir þátttökuna en sigurvegarnir sérstaka viðurkenningu við skólaslit í vor. Skipuð verður þriggja manna dómnefnd úr röðum kennara skólans sem velur verðlaunaverkin og mun hún taka mið af aldri og námsstigi.Nemendur hafa verið mjög duglegir við að vinna að þessu verkefni sem lýkur með tónleikaröð Tónsmiðjunnar í Ytri -Njarðvíkurkirkju á „Degi tónlistarskólanna” laugardaginn 26. febrúar . Á tónleikunum sem verða alls 6 talsins munu nemendur upplifa stóra stund þegar þeir frumflytja tónverkin sín. Tónleikarnir hefjast kl. 10.00 og verða u.þ.b. 60 mínútna tónleikar á eins og hálfs tíma fresti allan daginn. Það má búast við að nemendur og kennarar skólans frumflytji u.þ.b. 300 tónverk þennan dag.Allir eru velkomnir á tónleikana og við viljum eindregið hvetja foreldra nemenda og aðra aðstandendur og vini til að fjölmenna, því það er mikilvæg og hátíðleg stund í lífi hvers tónlistarnemanda, að frumflytja eigin tónsmíð.