Tónlistarveisla í Ytir-Njarðvíkurkirkju á föstudaginn
Föstudaginn 15. nóv. n.k. kl. 20.30 verða haldnir tónleikar í Ytri-Njarðvíkurkirkju. Þar munu Signý Sæmundsdóttir sópransöngkona og Þóra Fríða Sæmundsdóttir píanóleikari flytja verk eftir ýmis tónskáld, m.a. hið fræga lag “O lieb so lang du leben kannst” eftir Liszt og ljóð Goethes við tónlist eftir Hugo Wolf. Einnig er á dagskrá tónlist eftir Chaussen, Tryggva Baldursson o.fl.. Tónleikar þessir eru í röð landsbyggðartónleika á vegum Félags íslenskra tónlistarmanna sem styrktir eru af Menntamálaráðuneytinu en menningar- og safnaráð Reykjanesbæjar og Tónlistarskóli Reykjanesbæjar hafa gengið til samstarfs við þessa aðila með það fyrir augum að fá til bæjarins fleiri tónleika. Tónleikarnir eru öllum opnir og kostar miðinn kr. 1.500 en nemendur Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og gestir undir 18 ára aldri fá frítt inn.
Menningar- og safnaráð Reykjanesbæjar
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar
Menningar- og safnaráð Reykjanesbæjar
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar