Tónlist Miles Davis hjá Jazzfjelagi Suðurnesjabæjar
Miles á 10 strengi
Efnisskrá tónleikanna eins og fyrirsögnin gefur til kynna, eru verk eftir ameríska trompetleikarann Miles Davis, eða öllu heldur verk sem hann er skrifaður fyrir. Sagnir herma að hann hafi verið lunkinn við að eigna sér verk sem hann hljóðritaði þrátt fyrir að þau hafi verið úr penna annarra hljómsveitameðlima.
Farið verður yfir útgáfuferil Miles í grófum dráttum og gripið niður í nokkur af hans einkennisverkum. Bæði er um að ræða frumsamin verk en einnig lög sem hann hefur átt þátt í að innleiða í amerísku söngbókina.
Á tónleikunum verður tvinnað saman frásögnum af verkunum, tilurð, höfundaréttardeilum og svo auðvitað tónlistinni sjálfri.
Flytjendur eru þeir Mikael Máni Ásmundsson (rafgítar) og Leifur Gunnarsson (kontrabassi).
Tónleikarnir eru haldnir í Bókasafni Suðurnesjabæjar, Sandgerði, og er aðgangur ókeypis.
Jazzfjelagið er styrkt af Sóknaráætlun Suðurnesja, Félagi Íslenskra Hljómlistarmanna og Menningarsjóði Suðurnesjabæjar.