Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Tónleikar til styrktar Grindvíkingum í anda Eyjatónleikanna í Hörpu
Fimmtudagur 7. mars 2024 kl. 06:12

Tónleikar til styrktar Grindvíkingum í anda Eyjatónleikanna í Hörpu

Eyjamenn ætla að halda styrktartónleika fyrir Grindvíkinga föstudagskvöldið 3. maí og samhliða sölu á tónleikana, hefur verið sett af stað söfnun hjá einstaklingum og fyrirtækjum sem vilja leggja hönd á plóg. Reikningsnúmerið er 0185-26-000270, kennitala er 270246-4199

Sótt hefur verið um leyfi sýslumanns fyrir söfnuninni og hún unnin í samráði við Grindarvíkurbæ, en þar er sérstakur sjóður settur á laggirnar með sérstakri úthlutunarnefnd.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Söfnunarnefndin hér í Eyjum er skipuð þeim Höllu Svavarsdóttur, Njáli Ragnarssyni, Sigurhönnu Friðþórsdóttur, Hildi Sólveigu Sigurðardóttur, Bjarna Ólafi Guðmundssyni og Gísla Valtýssyni, sem verður sérstakur fjárgæslumaður söfnunarinnar.

Á tónleikunum 3. maí koma listamenn frá Eyjum til með að skemmta og flytja tónlist í anda Eyjatónleikanna í Hörpu. Þeir sem þegar hafa boðað komu sína eru Karlakór Vestmannaeyja, meðlimir úr Kvennakór Vestmannaeyja, Blítt og létt hópurinn, hljómsveitin Gosarnir með þá Gísla Stefáns, Jarl Sigurgeirs, Dúna Geirs, Sæþór Vídó, Þóri Ólafs og Bigga Nielsen innanborðs og fá þeir nokkra gestasöngvara, meðal annars Unu Þorvalds, Kristínu Halldórs, Tóta Óla og Hafþór Hafsteins, hljómsveitin Molda, Unnar Gísli eða Júníus Meyvant og sérstakir gestir verða Matti Matt og Védís Hervör.

Allur ágóði af tónleikunum rennur beint í söfnunina og eru Hallarbændum færðar þakkir fyrir lánið á henni. Allir listamenn gefa vinnu sína og því rennur miðaverð óskipt í söfnunina.

Miðasala er hafin á tix.is á morgun. Miðaverð er 5.000,- krónur, en það má greiða meira fyrir miðann, segir í tilkynningu frá Eyjamönnum.